Sjöund tilkynnir með stolti að Opus Dental 7.0 er tilbúið. Við vitum að mjög margir hafa beðið spenntir eftir þessari útgáfu þar sem hún inniheldur mikið af gagnlegum nýjungum. Í daglegum samskiptum höfum við fengið inn mikið af góðum ábendingum, hugmyndum og tillögum um það hvað mætti betur fara í hugbúnaðnum. Viðskiptavinir okkar hafa mikil áhrif á hvað er þróað í hverri útgáfu. Það er því ánægjulegt að tilkynna að margar óskir verða uppfylltar með þessari útgáfu.